blehhharar
Könnun
Ferð 2008



23.07.2008 10:17:13 / blehhh

Göngugarpar

Jæja kæru blehhharar8)

Ég ætlaði bara að þakka ykkur kærlega fyrir góða göngu og enn betri félagsskap :) 
Er strax farin að hlakka til að koma heim og plana ferð. 
En annars ætlaði ég að send ykkur linkinn á bloggið mitt sem er: www.aevintyrid.blogspot.com. 

Hafið það gott hvar sem þið verðið og stelpur skemmtið ykkur svakalega vel í Afríku og forðiðst flóðhestana:haha:
Bkv Ástý  

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2008 22:59:12 / blehhh

Upphitun 1- Esjan

Haldið verður á stað í fyrstu upphitun sumarsins klukkan 19:00 á morgun þriðjudaginn 10 júní.

 Áætlað er að hittast hjá Nóatúni Rofabær 39 í Árbænum og sameina í bíla.

Sjáumst á morgun,

Edda
8651022


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 14:24:02 / blehhh

Gisting í Þórsmörk II

Það er ekki laust í Básum þessa daga, en við erum með bókað í Langadal. Það þýðir að við þurfum að labba aðeins lengra... en það er bara stuð... er þaggi??  :)

Anyways... það er því bókuð gisting fyrir hópinn (held 16 manns) í Langadal, laugardaginn 19.júlí...  Þannig að takiði helgina frá.!!

kv. Nanna

» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 18:44:02 / blehhh

Gisting í Þórsmörk

Hello folkens! />

Ég athugaði með gistingu í Langadal (sami skáli og við vorum í eftir Laugarvegsgönguna) laugardaginn 19 júlí fyrir ca. 12 manns. Það er laust og því spurning hvort við eigum ekki bara að bóka það. Það var voða huggulegt að koma í skálann eftir gönguna síðast, grilla og hafa það gott og sofa í rúmi um nóttina. Það myndi einnig þýða að fólk þyrfti ekki að bera með sér tjöld í göngunni! Það kostar 3000.- á manninn í skálann, en 800.- á manninn fyrir tjaldgistingu. Hvernig segir fólki annars um þetta? Finnst fólki kannski bara meiri stemmning að vera í tjaldi? />

Það væri voðalega gott að fá viðbrögð við þessu sem fyrst svo plássið hlaupi ekki frá okkur!!! />

Mvh. />

Eyþór />


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 13:33:19 / blehhh

Keilir

Áður aflýst hópganga á Keilir verður farin núna á miðvikudaginn. Áætlað er að hittast rúmlega 6 heima heima hjá mér á Eggertsgötu 20 og sameina þar í bíla.

Þeir sem ætla að koma með í þennan magnaða göngutúr endilega kommmentið

Nánari upplýsingar á blogginu hér að neðan...

Kveðja,
Edda
S:8651022

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 21:42:53 / blehhh

Ganga 2008

Jæja gott fólk, hvernig líst ykkur á að labba Fimmvörðuháls helgina 18-20 júlí? Planið væri þá að fara austur að Skógum á föstudagskvöldi eftir vinnu og gista þar. Fara síðan af stað snemma um morguninn og er þá kannski hægt að reikna með að við verðum komin um 4-5 leitið í Þórsmörk. Sláum upp tjöldum í Básum eða Langadal, og rifjum upp góðar minningar síðan síðast.

Bílamál hafði ég hugsað þannig að við gætum verið í samfloti austur og skilið eftir bíla annað hvort á Hvolsvelli eða við Markarfljót og sameinað okkur í eins fáa bíla og hægt er  að Skógum. Tækjum svo rútuna úr Þórsmörk að bílunum við Markarfljótsbrúnna eða á Hvolsvelli og myndum svo sækja bílana að Skógum.

Hvernig líst fólki á þetta? Það eru sjálfsagt einhverjir sem þurfa að redda sér helgarfríi en enginn sem þarf að fá frí á virkum degi.

Hér er eitthvað um Fimmvörðuháls.

kv.
Eyþór

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 12:24:06 / blehhh

Upphitun 1

Var frestað...

Áætluð brottför á Keilir miðvikudagurinn 2. apríl klukkan 18:20....

Hver kemur með ?




» 2 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 18:59:39 / blehhh

Myndir

Á að vera að gera eitthvað allt annað en að setja inn myndir á internetið....en .....s.s. allt myndaalbúmið mitt er komið inn á síðuna : )

kv.
Edda


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 18:09:21 / blehhh

Mit forslag

Ég byrjaði á því að fara inn á www.blog.central.is/blehh en ég áttaði mig á því fljótlega að það var ekki síðan okkar.

Ég er alveg til í að klamba einhverju saman fyrir sumarið og lýst vel á styttri ferðir, þ.e.a.s. bara gista eina nótt og taka þá jafnvel bara 2 ferðir eða fleiri ef fólk vill.

Hvernig lýst fólki á Fimmvörðuháls? Labba frá Skógum á laugardagsmorgni og gista í Básum eða Langadal í tjaldi eina nótt og taka svo rútuna heim um morguninn.
Myndir frá Fimmvörðuhálsi hér

Einnig er hægt að labba frá Laugarvatni yfir fjallið og gista jafnvel í tjaldi á Rótarsandi eða þá í skála á Hlöðuvöllum og labba svo daginn eftir niður Brúarárskörð og enda í Úthlíð, eða Efstadal. Endum á sama stað og síðasta sumar, en umhverfið er allt öðruvísi á öðrum hlutum leiðarinnar. Það er hægt að sjá myndir frá Brúarárskörðum á síðunni okkar, nánar tiltekið hér
Það er líka hægt að taka eins dags göngu á fullt af fjöllum, bara spurning hvernig fjall fólk vill.

Það væri líka hægt að fara inná Kaldadal og keyra að fjalli sem heitir Prestahnúkur og labba þaðan í Þórisdal sem er þekktur útilegumannadalur, þar væri hægt að gista eina nótt og labba svo tilbaka.

Það sem mér finnst mikilvægt varðandi þessar ferðir er að hafa flutning eins einfaldan og hægt er þannig að það þurfi ekki að vera að smala saman fullt af jeppum til að koma okkur á staðinn.
Þetta er það sem mér dettur í hug í augnablikinu, látið í ykkur heyra.

kv.
Eyþór

P.S Ekki veit ég hver fann upp á emailinu eytorsig@hotmail.com, en það er alla vegana ekki mitt email. eythor@vvh.is er eitthvað sem ég hef betri möguleika á að skoða. :)



» 8 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 16:29:29 / blehhh

Gönguferð 2008!!!!!

Jæja...........þá er komið að því að skipuleggja gönguferðina miklu 2008 :)
Spurning hvort við ættum ekki að reyna að "brainstorma" og skrifa niður einhverjar hugmyndir að ferð sem síðan göngunefndin gæti unnið út frá??
Ef við erum að tala um stutta ferð þá takmarkast þetta svoldið. Var t.d að láta mér detta í hug að labba einhverstaðar í kringum Öskju og nágrenni en held það gæti verið svoldið stór pakki, plús að við þyrftum á nokkrum jeppum að halda :)...

En...segjið bara hvað ykkur finnst....og kannski hvaða helgi passar best.. líst ágætlega á þessa helgi sem Anna var að tala um þ.e.a.s helgina 18 - 20 júlí.

Bíð spennt eftir hugmyndum ;)

Kv. Svava

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.03.2008 15:28:39 / blehhh

Gönguferð 2008

Grænland 2010 !!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 23:26:18 / blehhh

Partý partý partý

Jæja gott fólk... ... við systur erum að fara að flytja inn í nýju íbúðina núna um helgina, líklega, þetta tafðist allt aðeins eins og er von og siður en er allt að fara að gerast :) Við erum orðnar svo spenntar fyrir nýja placinu að við erum búnar að ákveða dagsetningu fyrir innflutningspartý, laugardaginn 27 október, svo þið þurfið bara öll að taka daginn frá og mæta endilega sem flest. Það var einhvað í umræðunni um að Blehhh hópurinn gæti mætt fyrst og við haft smá fund og myndir og kanski einhvern léttan mat eða einhvað þannig lagað og svo væri bara partý á eftir. Endilega látið okkur vita hvað ykkur finnst og ef daguinn hentar ykkur. Kv, Erna og Ástý

» 7 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 19:08:42 / blehhh

ÉG VIL PARTYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYYY

jæja skólafólk og aðrir starfsmenn...nú er bara komið að því að halda party.....ég get því miður ekki planað það ,, hef alltof mikið að gera ;) svo ég verð að biðja ykkur dúllurnar mínar að sleppa lærdómnum í smá tíma og meika það. annnars er nú alltaf hægt að kíkja í íbúðina mína ef að ekkert gengur hjá ykkur hehe

» 6 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 22:06:49 / blehhh

læri....

 

Fyrst vil ég þakka ykkur öllum fyrir frábæra ferð!

Þeir sem eiga eftir að greiða fyrir lærið leggi inn á mig 800 krónur við tækifæri.

Reikningsupplýsingar:

0325 2600 4919 040583-4919

 

Ég legg til að við förum að við höldum bráðlega hitting.....Er einhver með tillögu að dagsetningu og stað?

Tillagana mín:  Hittingur í einstaklega stóru stúdentaíbúðinni minni einhverntíman í lok sept á föstudegi eða laugardegin. Einhverjir komi svo með landakort, gönguupplýsingar og bjór-en það er aldrei að vita nema að það sé hægt búa til með þessum hráefnum uppskrift af næstu ferð.....

kv.

Edda

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
N�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š�?�??�?¦sta fer�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1645 dögum
RSS tengill